flugfréttir

Þegar farið að bera á seinkunum á flugvöllum í Evrópu

7. júní 2023

|

Frétt skrifuð kl. 11:11

Gríðarlegar seinkanir voru næstum daglegt brauð á öllum helstum flugvöllum Evrópu sumarið 2022

Þegar er farið að örla á seinkunum á samgöngum í Evrópu og hafa evrópsk yfirvöld varað þá aðila sem eiga hlut að máli að huga sem fyrst að því að grípa í taumana til að draga úr áhrifum sem gæti orsakað enn frekari seinkanir þegar líður á sumarið.

Miklar tafir urðu til að mynda á flugsamgöngum sumarið 2022 sem mátti rekja til manneklu meðal starfsmanna á flestum flugvöllum í Evrópu vegna fjöldauppsagna í heimsfaraldrinum.

Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) hefur sent frá sér tilmæli þar sem vakin er athygli á vandamálinu en búist er við að enn fleiri farþegum hjá flugfélögunum á þessu sumri heldur en flugu í fyrrasumar.

EASA segir að ýmsir þættir geti orsakað miklar seinkanir í sumar á borð við kæruleysi meðal stjórnenda er kemur að skipulagi á vöktum starfsmanna auk þess sem auðveldlega er hægt að yfirsjást seinkanir á þjálfun á nýju starfsfólki.

Slík atriði geta komið af stað seinkunum og ef brugðist er við því með að fjölga aukavöktum þá skapar það álag á starfsfólk sem getur bitnað á flugöryggi.

Meðal tillaga EASA til þess að bregast við er ábending til flugfélaga um að hafa meiri sveigjanleika meðal áhafna og þá er ein af tillögunum sú að flugfélög láta ekki nýuppfærða flugstjóra fljúga með óreyndum aðstoðarflugmanni.

Talið er að eftirspurn eftir almenningssamgöngum í sumar í Evrópu eigi eftir að aukast um 15 prósent með 37.000 flugferðum í reglubundnu áætlunarflugi á dag.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga