flugfréttir

Flugfloti Wizz Air nálgast 200 þotur

8. júní 2023

|

Frétt skrifuð kl. 09:53

Wizz Air hefur í dag um 180 flugvélar í flota sínum

Senn styttist í að ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air taki við sinni tvö hundruðustu flugvél en við lok seinasta fjármálaárs, þann 31. mars sl. stóð flugflotinn í 179 flugvélum og samanstendur allur flotinn af þotum úr Airbus A320 fjölskyldunni.

Wizz Air segir að afhendingaráætlun félagsins hjá Airbus sé á áætlun og er gert ráð fyrir að í lok núverandi fjármálaárs verði flotinn komin í 208 þotur þann 31. mars 2024 og 241 þotu árið eftir það.

Í mars á næsta ári er talið að Airbus A321neo þotur muni samsvara 60% flugflotans en að því verða eldri A320 þotur teknar úr umferð.

Wizz Air á von á því að taka við 42 þotum af gerðinni Airbus A321neo á næstu tólf mánuðum og á sama tíma verður sextán Airbus A320 þotum skilað aftur.

Í dag á Wizz Air von á 365 þotum og þar af 47 langdrægum þotum af gerðinni Airbus A321XLR.

Afkoma Wizz Air á seinata fjármálaári var neikvæð um 467 milljónir evra sem samsvarar 70 milljörðum króna og á því tímabili var 51 milljón farþega sem ferðuðust með félaginu og mældist sætanýting 87.8 prósent.

Jozsef Varadi, framkvæmdarstjóri Wizz Air, segir að reksturinn sé að þokast í rétta átt eftir heimsfaraldurinn og spáir félagið því að afkoman verði jákvæð eftir núverandi fjármálaár um 350 til 450 milljónir evra.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga