flugfréttir
Myndband: Trent hreyfill settur saman hjá RR
Þotuhreyfill er flókin smíði og hér gefur að líta einstaklega skemmtilegt myndband þar sem sýnt er á miklum hraða hvernig eitt stykki þotuhreyfill er settur saman hjá Rolls-Royce verksmiðjunum í Derby á Englandi.
Myndbandið sýnir ferlið frá því að smíði hefst á RR Trent 1000 með samsetningu á innsta kjarna
túrbúnunnar sem minnir hvað mest á tromlu í þvottavél á fyrsta stigi ferlisins.
Trent 1000 hreyfill Rolls-Royce er samansettur úr yfir 20.000 mismunandi hlutum en hreyfillinn var kynntur
til sögunnar árið 2006 og knýr m.a. farþegaþotur á við Airbus A330, A340, Boeing 777 og Dreamliner-þotuna
sem einnig getur móttekið GEnx hreyfla frá General Electric.
Hver hreyfill vegur alls 5.7 tonn og er hann fluttur landleiðina frá Bretlandi með flutningabíl með skipi yfir Ermasundið
til Airbus-verksmiðjanna í Toulouse.
Þess má geta að einn Trent 1000 hreyfill frá Rolls Royce kostar rúma 2 milljarða enda einn dýrasti hlutinn
við kaup á farþegavél. Tveir hreyflar undir Dreamliner-vélina eru 20% af listaverði vélarinnar
sem verður yfir 30% að heildarverðinu miðað við þann afslátt sem flugfélögin fá.
Smellið hér fyrir myndbandið á Gizmodo.com
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.