flugfréttir
Bruce Dickinson kíkir í heimsókn hjá Boeing
- Fékk að taka í 747-8 flugherminn
Bruce Dickinson og Bruce Dickinson í flugherminum
Hinn viðkunnalegi flugmaður og söngvari, Bruce Dickinson, heimótti á dögunum þjálfunarbúðir Boeing í Seattle þar sem hann skoðaði meðal annars flugherma og ræddi við starfsmenn Boeing.
Bruce er nú á tónleikaferðalagi um Bandaríkin með Iron Maiden þar sem þeir komu fram m.a. í Seattle og ákvað söngvarinn
auðvitað að kíkja við hjá Boeing en heimsóknin tókst það vel að hann fékk að taka smá hring í Boeing 747-8 flugherminum.
Bruce hitti m.a. alnafna sinn en yfirverkfræðingur fyrir 747 hjá Boeing heitir einmitt líka Bruce Dickinson.
Bruce Dickinson hjá Boeing segir að það sé frekar erfitt að finna sig á Google því þá komi alltaf upp söngvari Iron Maiden.
Söngvarinn fór létt með að fljúga Boeing 747-8 í flugherminum enda enginn áhugaflugmaður hér á ferð en annars en Bruce
á fullu þessa daganna að sinna nýja viðhaldsfyrirtækinu sínu, Cardiff Aviation Limited, í Bretlandi ásamt því að túra með Iron Maiden
um Norður-Ameríku.
Hér má sjá stutt myndband frá heimsókn Bruce Dickinson til Boeing
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.