flugfréttir

FAA lætur þróa nýtt kerfi fyrir flugumferðarstjórn

- Harris hannar nýja kynslóð af upplýsingakerfi fyrir ATC

22. september 2012

|

Frétt skrifuð kl. 19:48

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hefur fengið fyrirtækið Harris Corporation til að þróa nýja kynslóð af samskiptakerfi fyrir flugumferðarstjórn Bandaríkjanna.

Harris Corporation er upplýsingatæknifyrirtæki sem hefur höfuðstöðvar sínar í Melbourne í Flórída en FAA gerði sl. fimmtudag 332 milljóna dollara samning við fyrirtækið til sjö ára um viðamikla uppfærslu á stafrænu gagnafjarskiptakerfinu (DCIS).

FAA segir að kerfið muni verða sett upp í öllum helstu flugturnum í Bandaríkjunum fyrir árið 2016 og flugumferðarstjórnstöðvum sem sjá um háloftaflugumferð fyrir árið 2019.

Teymi séfræðinga á vegum Harris í samvinnu við American Airines, Arinc og GE Aviation mun vinna að því að gera samhæft upplýsingakerfi sem mun verða innleitt inn í Arinc og Sita kerfinþ.
Annað fyrirtæki, Thales, sem er í samstarfi við Harris vinnur einnig að hönnun og uppsetningu á nýrri tegund af grafísku upplýsingakerfi fyrir flugumferðarstjórn sem þegar hefur verið prófað til reynslu á flugvellinum í Memphis í Tennessee en það verður sett upp á næstunni einnig á Newark-flugvelli og flugvellinum í Atlanta.

Harris er enn og hefur verið einn aðal samstarfsaðili FAA þegar kemur að upplýsingatækni er miðla gögnum fyrir flugumferðarstjórn hvort sem um er að ræða á hljóðrænu eða myndrænu formati.

Bandarísk flugmálayfirvöld gerðu einnig í ágúst sl. samning við Harris um að skipta hefðbundnu fjarskiptakerfi fyrir flugumferðarstjórn út fyrir nýju kerfi sem tengist gegnum Netið við National Airspace Voice System kerfið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga