flugfréttir
0.6 prósent fleiri fóru um Heathrow í september
- Mest aukning á flugferðum til Brasilíu og Kína
Smávægileg aukning var á farþegum sem fóru um Heathrow-flugvöll í september en 6.3 milljónir fóru um völlinn sem er 0.6 prósenta aukning miðað við sama tíma í fyrra.
BAA sem á og rekur Heathrow auk Stansted, Southampton, Glasgow og Aberdeen segir að um alla flugvellina fimm
fóru 9.2 milljónir farþega í september sem er svipaður fjöldi m.a.v. september 2011.
68 prósent af þeim farþegum
sem fóru um flugvellina fimm fóru um Heathrow-flugvöll.
Mesta aukningin um LHR er komin til vegna aukinnar flugumferðar til og frá Brasilíu og frá Kína sem jókst um 14 prósent
og 0.2 prósenta aukning varð í Evrópuflugi miðað við september 2011. Flug frá Heathrow til Grikklands og Portúgal hefur hinsvegar dregist saman um heil 4.8 prósent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.