flugfréttir
Yfir 1.500 byssur teknar af farþegum í USA í ár
- Fjórar skammbyssur gerðar upptækar á dag að meðaltali
Í dag höfðu 1.550 skammbyssur verið gerðar upptækar í handfarangri á bandarískum flugvöllum
Aldrei hafa fleiri skammbyssur verið gerðar upptækar frá farþegum í Bandaríkjunum og í ár en um 1.550 byssur voru teknar af farþegum á bandarískum flugvöllum við öryggisleit frá 1. janúar 2012 til dagsins í dag.
85% af þeim voru hlaðnar en flestar skammbyssurnar voru gerðar upptækar á Hartsfield-Jackson-flugvellinum í Atlanta en næstflestar
voru teknar af farþegum sem fóru um Dallas-Fort Worth flugvöllinn í Texas.
Skammbyssur voru ekki einu vopnin sem voru tekin af farþegum á árinu því einnig reyndu farþegar að fara um borð með lásabogabyssur,
hnífa, handsprengjur og haglabyssur.
Farþegar mega fara með skotvopn um borð í flug í Bandaríkjunum í innrituðum farangri en til þess þarf að fá leyfi frá flugfélaginu fyrir brottför.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.