flugfréttir
Porter Airlines mun færa út kvíarnar í Kanada
- Panta 12 CS100-vélar frá Bombardier
Kanadíska flugfélagið Porter Airlines tilkynnti í gær að félagið ætli að færa verulega út kvíarnar og verða þriðja alvöru flugfélag Kanada og fara í beina samkeppni við Air Canada og WestJet.
Félagið hefur gert samkomulag við Bombardier um kaup á 30 CS100 farþegaþotum til næstu ára en með því móti gæti Porter Airlines
boðið upp á leiðarkerfi sem nær frá austurströndinni til vesturstrandarinnar, bæði í Kanada og um öll Bandaríkin.
Porter Airlines gerði kaupsáttmála um að kaup á 12 CS100 vélum með möguleika á 18 vélum til viðbótar en sú fyrsta verður afhent fyrir árið 2016.
"Við höfum trú á því að nú er komin tími til að breiða út vængina", sagði Bob Deluce, framkvæmdarstjóri Porter Airlines
á ráðstefnu í Toronto í gær.
Félagið sér fram á að bjóða m.a. upp á flug frá Calgary, Edmonton og Vancouver til Los Angeles, Miami og Orlando og jafnvel til áfangastaða
í Karíbahafinu.
Porter Airlines, sem var stofnað árið 2006, hefur 19 Bombardier Q400 skrúfuvélar í flota sínum sem fljúga til 19 áfangastaða í austurhluta Kanada og í norðausturhluta Bandaríkjanna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.