flugfréttir
Lenti í Glasgow vegna sprengjuhótunar
- Stúlka fann sprengjuhótun á servíettu í vél EgyptAir
Lögregla fylgir farþegum frá borði á Prestwick-flugvellinum í Glasgow í dag
Farþegaþota af gerðinni Boeing 777 frá EgyptAir þurfti að lenda í Glasgow í dag eftir að skriflega sprengjuhótun fannst á salerni vélarinnar.
Um 320 farþegar voru um borð í vélinni sem var á leið frá Kaíró til New York þegar stúlka fann á salerninu servíettu í vaskinum sem á stóð "I´ll set this plane on fire".
Vélin var komin þrjá tíma áleiðis þegar stúlkan fann servíettuna og lét áhöfn vita sem læsti salerninu og gerði flugmenn viðvart.
Tvær Typhoon-orrustuþotur fóru á móti vélinni og fylgdi vélinni til lendingar á Prestwick-flugvelli og voru farþegar látnir yfirgefa vélina
og voru þeir yfirheyrðir í flugstöðinni á meðan sprengjusérfræðingar fóru um borð en engin sprengja fannst.
Atvikið gerðist þremur vikum eftir að Boeing 777 vél frá Pakistan International Airlines (PIA) lenti í Birmingham
eftir að tveir menn reyndu ítrekað að komast inn í flugstjórnarklefann.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.