flugfréttir
Ekki í myndinni að lengja A380
- Einblínt verður á að betrumbæta risaþotuna
A380 vél British Airways lenti á flugsýningunni í París
Airbus hefur tilkynnt að verið sé að skoða möguleika á að undirbúa endurbættari útgáfu af risaþotunni A380 en ekki sé í myndinni að lengja vélina eins og margir hafa átt von á.
Tom Williams, stjórnarformaður Airbus, sagði á Paris Air Show að framleiðandinn þurfi að vera á tánnum til að tryggja það að risaþotan
verði samkeppnishæf áfram á komandi árum.
Eftirspurn eftir A380 hefur farið dvínandi og pantanir hafa ekki verið margar og eru sumir sem spá því að ný kynslóð af Boeing 777
eigi eftir að varpa skugga á sölu á risaþotu Airbus.
Williams tók einnig fram að Airbus sé frekar að einblína á endurbætur á A380 frekar en að ráðast í hönnun á lengri útgáfu en
risaþotan er aðeins fáanleg í einni lengdarútgáfu, sem er A380-800.
Tim Clark, forstjóri Emirates, sem er það flugfélag sem hefur flestar A380 vélar í flotanum í dag, hefur hvatt Airbus til
að hefja smíði á lengri risaþotu. Williams segir samt að ekki verði smíðuð lengri útgáfa einungis fyrir einn viðskiptavin.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.