flugfréttir
Mál höfðað gegn samruna American
Andstæðingar fyrirhugaðs samruna American Airlines og US Airways hafa höfðað mál til dómstóla til að koma í veg fyrir sameininguna á þeim forsendum að hún muni bitna á farþegum þar sem flugfargjöld eigi eftir að hækka í kjölfarið.
Lögfræðingurinn, Joseph Alioto sem fer fyrir hópi andstæðingana, segir að samruninn muni orsaka það
að færri flugferðir verði í boði og að þjónusta muni skerðast til muna og þá sérstaklega flug til smærri
bæja og samfélaga.
Einnig er talið að samruninn muni verða til þess að fjögur stærstu flugfélögum Bandaríkjanna, United, Delta, Southwest
og American, muni hafa 90% markaðshlutdeild í innanlandsflugi sem muni leiða til þess að fargjöld muni
hækka verulega.
Talsmaður American Airlines segir málssóknina ástæðulausa og þvætting þar sem hann fullyrðir
að starfsemi félaganna muni ekki breytast og þvert á móti muni áfangastöðum fjölga og þjónustan
verða betri.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lögfræðingurinn Joseph Alioto fer í mál vegna samruna flugfélaga
en það gerði hann einnig er Southwest Airlines sameinaðist AirTran nýverið og tapaði hann því máli
og var skjólstæðingum hans gert að greiða málskostnað Southwest upp á 8,3 milljónir króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.