flugfréttir
Flugdólgur sem raskaði flug snéri aftur daginn eftir í annarri vél
- Báðar vélarnar þurftu að lenda óvænt og losa sig við kauða
Ekki eru margir flugdólgar sem tekst að trufla tvisvar sinnum áætlunarflug með nokkurra klukkutíma millibili
Þótt flugdólgar láti til skarar skríða reglulega og trufli flugferð með þeim afleiðingum að vél þurfi að lenda skyndilega, þá er sjaldan sem að flugdólgur nær því að spila sama leikinn strax daginn eftir.
Á mánudaginn var tilkynnt um farþega sem lét illum látum um borð í vél US Airways sem þurfti að lenda
á flugvellinum í Albuquerque en maðurinn var yfirheyrður af bandarísku alríkislögreglunni (FBI) áður en honum
var sleppt.
Maðurinn þurfti að dúsa í Albuquerque en morguninn eftir fór hann á stjá og gekk um borð í vél American Eagle og hugðist
fljúga til Chicago. Sú vél þurfti hinsvegar að lenda óvænt í Kansas City eftir að sá hinn sami ætlaði sér að ganga
frá borði út um neyðarútganginn í miðju flugi auk þess sem hann reyndi að kveikja sér í sígarettu.
Vélin lenti á flugvellinum í Kansas City þar sem lögreglan hafði móttökuathöfn fyrir flugdólginn en vélin lenti
loks í Chicago tveimur tímum síðar.
Ekki kemur fram hvort farþeginn hafi reynt að fara um borð í þriðja flugið eða sætt sig við að setjast að í Kansas.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.