flugfréttir
Fyrsta tyrkneska þyrlan á teikniborðið
- Séfræðingar hafa sínar efasemdir
Tyrkland ætlar sér að hefja framleiðslu á fyrstu þyrlunni þar í landi en framleiðandinn, TAI, hefur fengið Sikorsky-þyrluframleiðandann með sér í lið sem mun verða þeim innan handar og stjórna framleiðslunni.
Tyrkneskir verkfræðingar munu koma að þróun þyrlunnar en séfræðingar í fluginu hafa sínar efasemdir um tyrknesku
þyrluna sem verður fyrst seld til tyrkneska hersins áður en hún mun fara á alþjóða markað.
Yfirvöld í landinu ætla sér að selja 800 eintök til tyrkneska hersins og 400 þyrlur til erlendra viðskiptavina en fyrst voru
gerð drög að hönnun þyrlunnar árið 2010.
Sérfræðingar í flugiðnaðinum segja að áform Tyrklands um að smíða sína fyrstu þyrlu gæti orðið erfiðara fyrir þá
en þeim grunar og aðili sem starfar í varnarmálum í Ankara segir allt benda til þess að erfitt verður að þróa
mótorinn með tyrknesku hugviti.
"TAI hefur engin áform um hvernig þeir ætla smíða mótorinn en slík þróun hefur ekki verið sterkasta hlið meðal
tyrkneskra verðfræðinga og verða þeir að öllum líkindum að leita alfarið til reynslubolta erlendis".
TAI vonast til að þyrlan muni fljúga sitt fyrsta flug innan 5 ára.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.