flugfréttir
Eurocopter frumsýnir fimm nýjar þyrlur á Helitech 2013
Evrópski þyrluframleiðandinn Eurocopter mun frumsýna fimm nýjar þyrlur á þyrlusýningunni Helitech International 2013 sem fram fer í næstu viku.
Til sýnis verður líkan í fullri stærð af nýju EC175 sem einnig er þekkt sem Avicopter Z-15 en hún flaug sitt fyrsta
flug árið 2009 og munu afhendingar hefjast síðar á þessu ári.
Eurocopter mun einnig frumsýna EC130 T2 sem er arftaki og endurbættari útgáfa af EC130 þyrlunni ásamt EC145 T2, EC120 og EC145.
Helitech International 2013 sýningin hefst þann 24. september í London og stendur hún yfir í 3 daga en þar munu fjölmörg
fyrirtæki í þyrluiðnaðinum ásamt þyrluframleiðendum kynna vöru sína og þjónustu.
Meðal fyrirtækja sem verða á sýningunni er AgustaWestland, Bell, Honeywell, Saab, Sikorsky ásamt fjölda annara aðila.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.