flugfréttir
"Ryanair er gott flugfélag sem er alltaf ódýrast"
- "Ekki von á neinum verulegum breytingum", segir O´Leary

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair
Ryanair ætlar sér ekki að gera neinar róttækar breytingar á rekstri félagsins þótt að verið sé að bæta þjónustu við farþega og ímynd þess.
Þetta sagði Michael O´Leary, framkvædmarstjóri lágfargjaldarfélagsins í viðtali
við Reuters fréttastofuna en félagið hefur verið mikið milli tannana á fólki vegna
lélegrar framkomu við farþega.
O´Leary segir að hann hafi hlaupið aðeins á sig í september og áttu margir þá von
á verulegum breytingum hjá Ryanair en að sögn hans er aðeins um að ræða
betrumbætur á vefsíðu félagsins auk þess sem nokkur aukagjöld verða lækkuð.
"Það eru engar verulegar breytingar á leiðinni", segir O´Leary sem hefur verið sakaður
um að koma illa fram við viðskiptavini félagsins og starfsfólk sitt.
"Ryanair hefur alltaf verið gott flugfélag sem hefur boðið farþegum lægstu fargjöld
af öllum flugfélaginum", bætir hann við.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.