flugfréttir
Þotumaðurinn flýgur kringum Fuji-fjallið í Japan
Rossy á fleygiferð í nágrenni Fuji-eldfjallsins í Japan
Ævintýramaðurinn Yves Rossy flaug nýlega kringum Fuji-eldfjallið í Japan með fjögurra hreyfla þotuvæng sinn fastann á bakinu.
Rossy, sem er 54 ára, flaug níu sinnum kringum eldfjallið á allt að 300 kílómetra
hraða og náði hann mest 12.000 feta hæð en Rossy hefur m.a. flogið í þotubúningi sínum
um Alpanna, Miklagljúfur og yfir Ermasundið.
Rossy stökk út úr þyrlu áður en hann ræsti hreyflana á þotuvængnum sem hann stjórnar
með tveimur stýripinnum.
Að loknu fluginu ræddi Rossy við blaðamenn og svaraði spurningum og hvatti hann fólk
til að halda í drauma sína og gera það sem það telur vera óframkvæmanlegt.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.