flugfréttir

FedEx sakað um niðurskurð í viðhaldi til að auka hagnað

- Fyrrverandi flugvirkjar segja að sjá megi sprungur í búk á gömlum vélum

11. desember 2013

|

Frétt skrifuð kl. 17:26

Fedex vöruflutningarisinn, fjórða stærsta flugfélag í heimi er kemur að stærð flugflota, hefur verið ásakað um brot á öryggisreglum í flugi en nokkrir flugvirkjar og lögfræðingar undirbúa nú mál gegn fyrirtækinu.

Þetta kemur fram í fréttum Yahoo þar sem Fedex er gefið að sök að stofna öryggi félagsins og starfsmanna í hættu með því að sneiða fram hjá viðhaldi og viðgerð á gömlum og notuðum vélum sem félagið hefur fest kaup á upp á síðkastið og fengið á góðum kjörum.

Fram kemur að sumar af þessum vélum þurfi að gangast undir mun meiri viðhald og eftirlit svo þær geti uppfyllt lágmarkskröfur um flughæfni.

Einhverjir flugvirkjar á vegum FedEx skiluðu inn á sínum tíma formlegri kvörtun til bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) þar sem þeir segja að viðhald þessara véla sé alls ekki í samræmi við reglugerðir FAA.

Fram kemur í umsögn flugvirkjana að FedEx hafi skráð niður viðhaldsvinnu á vélunum sem í raun og veru fór aldrei fram og einnig staðfesta þeir að félagið sé að fljúga mörgum vélum um öll Bandaríkin sem margar hafa svo slæma málmtæringu á búknum að í sumum tilfellum séu sprungurnar sjáanlegar með berum augum.

Brian Gruzalski, sem eitt sinn starfaði sem flugvirki fyrir FedEx, segir að fyrirtækið sé að reyna skera niður í viðhaldi til að auka hagnað fyrirtækisins enn frekar og sé því verið að setja öryggið í annað sæti á og rekstrarhagnað í forgang.

Einnig segir Gruzalski að Fedex hafi skráð mjög óraunhæfann tímaramma á viðhald á gömlum vélum og hafi ekki verið tekið tillit til þess að viðgerð og viðhald á gömlum vélum sem eru næstum því úr sér gengnar eftir margra ára flugsögu taki mun lengur tíma en viðhald á nýjum vélum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga