flugfréttir
A350 í flugprófunum í Bólivíu
- Vélin prófuð á hæsta alþjóðaflugvelli heims
Prófanir fara nú fram á Airbus A350 vélinni á flugvelli í mikillri hæð yfir sjávarmáli en til þess var einni af A350 prófunarvélum Airbus, MSN3, flogið til Bólivíu.
Prófanir fara bæði fram á flugvellinum í La Paz sem er í 13,325 feta hæð yfir sjávarmáli og einnig
á Jorge Wilstermann flugvellinum í Cochabama sem er í 8,360 feta hæð.
Prófanir verða gerðar á vélinni í flugtaki og lendingu og einnig verður líkt eftir bilun í mótor
en sökum þess hversu þunnt andrúmsloftið er í þessari hæð þurfa vélar lengri flugbraut
til að hægja á sér í lendingu þar sem loftmótsstaðan er minni.
Einnig mun fara fram prófanir á fráflugi (go-around) og sjálfvirkri lendingu.
Síðan að flugprófanir hófst með A350 vélinni þann 14. júní sl. sumar hefur vélunum verið
flogið í 800 klukkustundir í tilraunaskyni en alls munu fimm A350 vélar klára flugprófanir upp
á 2.500 flugtíma áður en vélarnar fá vottun frá EASA og FAA.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.