flugfréttir
Airbus-vél óvart máluð í vitlausum litum
- Þarf að fara aftur í sprautunarklefann
A320 vél Monarch í með vitlausan fjólubláan lit
Mála þarf aftur Airbus A320 vél Monarch Airlines eftir að uppgötvaðist að einn litur í búningi vélarinnar var ekki í nákvæmlega sama tón og litir flugfélagsins.
Monarch Airlines hefur ákveðið að fríska upp á útlitið á flugflota sínum og verða
þær málaður í grunnlitunum sem eru þrír, hvítur, gulur og fjólublár en með
smá breytingum og ferksara útliti.
Hinsvegar kom í ljós eftir að ein fyrsta vélin var málið að fjólublái liturinn
varð of ljós við sprautun og hefur flugfélagið ákveðið að taka vélina aftur
inn í sprautunarklefann og sprauta hana upp á nýtt.
Vélin fór hinsvegar í sitt fyrsta og síðasta flug í þessum litum í gær er hún flaug
frá Manchester til Gibraltar og mun síðan eftir helgi verða máluð upp á nýtt.
Ekki er vitað nákvæmlega hvað það kostar fyrir Monarch að mála eina A320
vél en talið er að kostnaðurinn við að sprauta þessa einu vél sé í kringum 7 milljónir
króna.
A320 vél Monarch í röngum litum
Vél Monarch í þeim litum sem þær hafa verið í síðustu ár
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.