flugfréttir

WOW air hættir við flug til Boston og Stokkhólms

- Isavia segir að nóg pláss sé á Keflavíkurflugvelli fyrir brottfarir- og komutíma

5. febrúar 2014

|

Frétt skrifuð kl. 14:05

Airbus A320 vél WOW air

WOW air hefur hætt við fyrirhugað flug til Boston í Bandaríkjunum og einnig til Stokkhólms næsta sumar þar sem félagið segist ekki hafa fengið úthlutað hentuga brottfarartíma frá Keflavíkurflugvell.

WOW air tilkynnti í október í fyrra að Boston yrði fyrsti áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku og myndi flug þangað hefjast í maí í vor en félagið hefur frá upphafi eingöngu flogið til áfangastaða í Evrópu.

Í september 2013 tilkynnti félagið einnig að Stokkhólmur yrði nýr áfangastaður og yrði flogið á Arlanda-flugvöllinn þrisvar í viku frá og með 1. júní 2014 en sala á farmiðum til Stokkhólms hófst í september.

Um 7.000 farþegar hafa þegar keypt sér farmiða til Stokkhólms en félagið segir að þeim verði annaðhvort boðin endurgreiðsla eða nýta sér annað flug með félaginu.

WOW air segir að með þessu mun ferðamannaiðnaðurinn á Íslandi fara á mis við 5,5 milljarða króna en félagið hafði fjárfest fyrir 150 milljónir króna í undirbúningi fyrir flug til Norður-Ameríku.

Félagið ásakar Isavia, rekstraraðila Keflavíkurflugvallar um að hafa ekki farið eftir fyrirmælum frá Samkeppniseftirlitinu.

Isavia segir það óheiðarlegar ásakanir að ekki sé verið að stuðla að samkeppni

Isavia segist harma ákvörðun WOW air að hætta við að fljúga til áfangastaðanna með því að nýta sér ekki þá afgreiðslutíma sem félagið fékk úthlutað í Keflavík fyrir flug til Boston og Stokkhólms.

Óháður aðili sér um að samræma og úhluta afgreiðslutíma á KEF en ekki Isavia

Isavia segir í tilkynningu að afgreiðslutímum sé úthlutað í samræmi við evrópskar reglur og sé það í höndunum á öðrum óháðum aðila hvaða brottfarar- og komutímar sé gefnir út fyrir hvert flugfélag og sé Isavia ekki í stöðu til að hafa áhrif á þá tíma.

Isavia segir að það sé ekki réttlátt að ásaka þá um að hefta samkeppni í flugi til og frá landinu og sé rekstraraðilinn ekki að taka afstöðu um hagsmuni Icelandair eins og WOW air telur vera í pottinn búið.

Isavia bendir á að 17 flugfélög muni fljúga til og frá landinu í sumar sem er metfjöldi og ætíð hafi verið stuðlað að heiðarlegri samkeppni og sé verið að koma á móts við aukna flugumferð með stækkun á flugstöðinni svo hægt sé að fjölga brottfarar- og komutímum. Með það að leiðarljósi sýnir það glöggt að verið er að auka aðbúnað og gefa fleiri flugfélögum tækifæri á því að fljúga til og frá landinu og fjölga áfangastöðum.

Nóg pláss fyrir fleiri afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli

Isavia bendir á að nóg sé af afgreiðslutímum á Keflavíkurflugvelli að undanskildum álagstímum á morgnanna og síðdegis sem varir í eina og hálfa klukkustund tvisvar á sólarhring.

Isavia hefur ekki heimild til að hafa áhrif á þann aðila sem úthlutar afgreiðslutíma

Isavia furðar sig einnig á vinnubrögðum Samkeppnisstofnunar í þessu máli sem segir að það sé í höndum Isavia að hafa áhrif á óháðan samræmingarstjóra sem er brot á evrópskum reglugerðum um afgreiðslutíma þar sem slíkt gæti skaðað samkeppni í flugi til og frá landinu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga