flugfréttir

Vísbendingar um galla í stélhluta á Draumfara

- Lagaskipt trefjaefni í búknum virðist vera að aðskiljast

6. febrúar 2012

|

Frétt skrifuð kl. 13:46

Boeing mun geta úttekt á göllum í stélhluta Dreamliner-þotunnar

Boeing-verksmiðjurnar munu hefja rannsóknir á næstunni á galla sem hefur fundist á nýju Dreamliner-vélunum Boeing 787 en fundist hafa merki um að undirlög í trefjaefni í búk vélarinnar nálægt stélinu sé að skiljast í sundur.

Scott Lefeber talsmaður Boeing segir að ekkert þurfi að óttast um öryggi og flughæfi vélanna en hingað til er japanska flugfélagið All Nippon Airways (ANA) eina flugfélagið sem hefur Dreamliner-vélar í flota sínum og mun ANA halda áfram að fljúga þeim þrátt fyrir þessa uppgötvun.

Boeing hefur hafið undirbúning á að athuga aðrar Dreamliner-vélar sem hafa verið framleiddar en of snemmt er að segja til um hvort merki sé um fleiri sprungur í lögum efnisins á búk annara véla.

Boeing segir að úttekt verði gerð á nýju verksmiðjunum í South Carolina þar sem stélhluti vélarinnar er settur saman en talið er að orsökina megi rekja til ófullnægjandi slípunnar á megin burðarvirki í aftasta hluta vélarinnar sem trefjaefni búksins festist við.

"Sumir undirverktakar eiga það til að nota aðrar aðferðir þegar þeir eru að setja saman einstaka hluti sem getur valdið miklu vandamáli við lokasamsetningu á búk vélarinnar", segir Michel Merluzeau hjá G1 Solutions fyrirtækinu í Seattle.

"Þótt að merki séu um að efni í búk vélarinnar sé að skiljast í sundur þá þýðir það ekki að Dreamliner-vélin sé að flagna í sundur", bætir hann við og segir að þetta sé vandamál í framleiðslunni sem þarf að laga og fyrirbyggja.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga