flugfréttir
Leitin færist neðansjávar
- Breski kjarnorkukafbáturinn HMS Tireless mætti á svæðið í dag

Kjarnorkukafbáturinn HMS Tireless kom á leitarsvæðið í dag
Breski kjarnorkukafbáturinn HMS Tireless (S88) hefur slegist í hóp þeirra leitarflokka sem leita að malasísku farþegþotunni í Suður-Indlandshafi og er þetta fyrsti kafbáturinn til að hefja leit að vélinni neðansjávar.
David Bowden, fréttaritari Sky News segir að kafbáturinn muni þjóna lykilhlutverki í leitinni
þar sem hann er útbúinn nokkrum tegundum af fullkomnum sónartækjum auk þess sem öflugur
ratsjárbúnaður er um borð.
Sónarbúnaðurinn verður notaður til að hlusta eftir þeim bylgjum sem flugritinn sendir frá sér
og á kafbáturinn mjög auðvelt með að greina þær bylgjur því dýpra sem hann kafar.
Þá mun HMS Echo, skip breska sjóhersins, mæta á svæðið á morgun og um helgina er von
á að Ocean Shield skipið komi á svæðið með Towed Pinger Locator búnaðinn sem er sérhannaður
til að finna svarta kassa flugvéla auk kafbátavélmennisins Bluefin-21.
"Ef við finnum ekki flakið af vélinni þá verðum við á endanum að meta stöðuna upp á nýta
og ákveða næsta skref", sagði Angus Houston, aðgerðarstjóri sem stýrir samhæfingarmiðstöð leitarinnar
í Perth sem tók það fram að það gæti farið svo að vélin muni aldrei finnast.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.