flugfréttir

"Erfiðasta leitin í sögu mannkynsins"

- "Fyrr mun frysta í helvíti en við hættum að leita"

3. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 19:53

Forsetisráðherra Malaysíu, Najib Razak, og Tony Abbott, forsetisráðherra Ástralíu, heilsa upp á áhöfn P-3 Orion-vélar ástralska flughersins í Perth í dag

Enn hafa engar vísbendingar eða ummerki fundist við mikla leit að malasísku farþegaþotunni þótt að margar flugvélar og skip séu búnar að kemba leitarsvæðið á Suður-Indlandshafi vestur af Ástralíu síðustu daga.

Engin ný brök hafa fundist til viðbótar en það sem hefur þegar fundist á sjónum virðist allt hafa verið rusl og aðrir hlutir sem tilheyra ekki flugvélinni.

Átta flugvélar og níu skip tóku þátt í leitinni í dag á svæði sem þekur 223.000 ferkílómetra

Forsetisráðherra Malaysíu, Najib Razak, átti í dag fund með Tony Abbott, forsetisráðherra Ástralíu en Abbott sagði að þetta væri sennilega erfiðasta leit í sögu mannkynsins - "Varðandi Ástralíu þá erum við að tjalda öllum sem til er í leitinni", sagði Abbott.

"En við getum verið viss um að það verður ekkert gefið eftir - við munum ekki hvíla okkur á því að leita fyrr en við höfum gert allt sem við mögulega getum", segir Abbott.



"Við munum halda áfram og fyrr mun frysta í helvíti fyrr en við hættum að leita", sagði Kim Beazley, fyrrum varnarmálaráðherra Ástralíu sem í dag er sendiherra Bandaríkjanna. - "Þetta gæti tekið mánuði, þetta gæti tekið ár".

Á næstu klukkustundum munu tvö skip til viðbótar mæta á leitarsvæðið, breska herskipið HMS Echo annarsvegar og Ocean Shield hinsvegar sem mun mæta með Towed Pinger Locator búnaðinn og kafbátavélmennið Bluefin-21.

Von á stórri tilkynningu á morgun frá yfirmanni samhæfingarmiðstöðvarinnar

Einn aðili, sem er óheimilt að tjá sig við fjölmiðla, sagði við CNN að á morgun kæmi stór yfirlýsing frá Angus Houston, stjórnanda samhæfingarmiðstöðvar leitarinnar í Perth. Ekki er vitað hvað felst í þeirri yfirlýsingu en vonast er til þess að það gæti varðað nýjar vísbendingar í leitinni sem hefur enn engan árangur borið.

Malasísk yfirvöld héldu blaðamannafund á hóteli í Kuala Lumpur en ekkert nýtt kom fram á þeim fundi. "Mér finnst ég hafa eytt þremur klukkutímum í ekki neitt", sagði Mohammad Sahril Shaari en frændi hans var um borð í vélinni á leið í brúðkaupsferðina sína.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga