flugfréttir
Kínverskt skip nær að greina púlsmerki á Indlandshafi

Um borð í kínverska skipinu Haixun 01 í dag
Kínversk skip hefur náð að greina hljóðmerki á leitarsvæðinu á Suður-Indlandshafi þar sem leit fer fram að malasísku farþegaþotunni sem hvarf fyrir 4 vikum síðan.
Kínverska fréttastofna Xinhua segir að skipið Haizun 01 hafi greint merkið en það skip kom á leitarsvæðið
í gær og hefur það verið við leit á norðurhluta svæðisins.
Dýptin á svæðinu þar sem skipið er statt á eru 5.000 metrar og greindist merki á tíðninni 37.5 kHz sem er sú
byljgulengd sem neyðarsendar á svörtu kössunum notast við.
Áströlsk stjórnvöld hafa enn ekki gefið út neina yfirlýsingu vegna þessa enn sem komið er.
Uppfært kl. 12:50
Anish Pater, forstjóri fyrirtækisins Dukane Seacom í Sarasota í Flórída framleiðir neyðarsendana, segir að það beri
að varast samt að alhæfa að um svörtu kassa vélarinnar sé að ræða.
Anish segir að þetta séu góðar fréttir að merkin eru að heyrast á tíðninni 37,5 kHz en tekur þó fram að það ættu
að vera tvö merki sem ættu að heyrast.
Uppfært kl. 13:00
Þótt að sumir sérfræðingar segja að það verði að taka þessar upplýsingar með fyrirvara þá er flugsérfræðingur CNN, David Soucie,
mjög sannfærður um að þetta sé merkið frá svarta kassanum.
"Þetta er merkið - Ég hef fengist við þetta í mörg ár. Ég get ekki ímyndað mér hvað annað þetta ætti að vera", segir Soucie sem er fyrrum flugslysarannsóknaraðili sem starfaði áður fyrir bandarísk flugmálayfirvöld (FAA).
Uppfært kl. 13:10
Kínverska skipið náði að aðeins að greina eitt hljóðmerki en neyðarsendar svörtu kassana gefa frá sér merki
á sekúndufresti.
Arnold Carr, sónarsérfræðingur, segir að það beri að taka þetta með miklum fyrirvara og telur hann mjög líklegt
að ekki sé um svarta kassann að ræða.
"Skipið þarf að sigla aftur yfir svæðið og greina merkið aftur og einangra staðsetninguna því þetta merki gæti verið
að koma frá einhverju öðru - Tíðnin er hinsvegar rétt", segir Carr sem hefur sínar efasemdir.
Uppfært kl. 13:28
Á þessu korti sést hvar kínverska skipið Haixun 01 náði að greina púlsmerkið
Uppfært kl. 14:09
David Souice, flugsérfræðingur segir í viðtali við CNN að hann væri ekki eins bjrtsýnn varðandi
hvort að um sé að ræða púlsmerki frá svörtu kössunum ef skipið er ekki að ná að heyra hljóðið aftur
með því að sigla aftur yfir svæðið.
Mike Williamson segir að ef þetta sé merkið frá svörtu kössunum að þá væri komin mjög nákvæm
staðsetning. Hinsvegar gæti verið að erfiðlega gengur að heyra hljóði aftur ef púlsmerkið er orðið það
dauft þar sem rafhlöðurnar eru við það að tæmast þessa daganna.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.