flugfréttir

Kínverskt skip nær að greina púlsmerki á Indlandshafi

5. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 12:33

Um borð í kínverska skipinu Haixun 01 í dag

Kínversk skip hefur náð að greina hljóðmerki á leitarsvæðinu á Suður-Indlandshafi þar sem leit fer fram að malasísku farþegaþotunni sem hvarf fyrir 4 vikum síðan.

Kínverska fréttastofna Xinhua segir að skipið Haizun 01 hafi greint merkið en það skip kom á leitarsvæðið í gær og hefur það verið við leit á norðurhluta svæðisins.

Dýptin á svæðinu þar sem skipið er statt á eru 5.000 metrar og greindist merki á tíðninni 37.5 kHz sem er sú byljgulengd sem neyðarsendar á svörtu kössunum notast við.

Áströlsk stjórnvöld hafa enn ekki gefið út neina yfirlýsingu vegna þessa enn sem komið er.

Uppfært kl. 12:50

Anish Pater, forstjóri fyrirtækisins Dukane Seacom í Sarasota í Flórída framleiðir neyðarsendana, segir að það beri að varast samt að alhæfa að um svörtu kassa vélarinnar sé að ræða.

Anish segir að þetta séu góðar fréttir að merkin eru að heyrast á tíðninni 37,5 kHz en tekur þó fram að það ættu að vera tvö merki sem ættu að heyrast.

Uppfært kl. 13:00

Þótt að sumir sérfræðingar segja að það verði að taka þessar upplýsingar með fyrirvara þá er flugsérfræðingur CNN, David Soucie, mjög sannfærður um að þetta sé merkið frá svarta kassanum.

"Þetta er merkið - Ég hef fengist við þetta í mörg ár. Ég get ekki ímyndað mér hvað annað þetta ætti að vera", segir Soucie sem er fyrrum flugslysarannsóknaraðili sem starfaði áður fyrir bandarísk flugmálayfirvöld (FAA).

Uppfært kl. 13:10

Kínverska skipið náði að aðeins að greina eitt hljóðmerki en neyðarsendar svörtu kassana gefa frá sér merki á sekúndufresti.

Arnold Carr, sónarsérfræðingur, segir að það beri að taka þetta með miklum fyrirvara og telur hann mjög líklegt að ekki sé um svarta kassann að ræða.

"Skipið þarf að sigla aftur yfir svæðið og greina merkið aftur og einangra staðsetninguna því þetta merki gæti verið að koma frá einhverju öðru - Tíðnin er hinsvegar rétt", segir Carr sem hefur sínar efasemdir.

Uppfært kl. 13:28

Á þessu korti sést hvar kínverska skipið Haixun 01 náði að greina púlsmerkið



Uppfært kl. 14:09

David Souice, flugsérfræðingur segir í viðtali við CNN að hann væri ekki eins bjrtsýnn varðandi hvort að um sé að ræða púlsmerki frá svörtu kössunum ef skipið er ekki að ná að heyra hljóðið aftur með því að sigla aftur yfir svæðið.

Mike Williamson segir að ef þetta sé merkið frá svörtu kössunum að þá væri komin mjög nákvæm staðsetning. Hinsvegar gæti verið að erfiðlega gengur að heyra hljóði aftur ef púlsmerkið er orðið það dauft þar sem rafhlöðurnar eru við það að tæmast þessa daganna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga