flugfréttir

Rafhlöður í svarta kassanum gætu endst fram yfir helgi

- Hljóðmerkin sem greindust í gær ekki talin tilheyra svörtu kössunum

11. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 09:05

Svörtu kassar malasísku farþegaþotunnar gætu gefið frá sér hljóðmerki í allt að fimm daga til viðbótar þrátt fyrir að rafhlöður í neyðarsendum þeirra hefðu átt að renna út sl. mánudag.

Anish Patel, forstjóri Dukane Seacom, fyrirtækisins sem framleiðir sendana, sagði í viðtali við CNN að það mætti m.a.v. 40 daga og ættu þeir því að hafa líftíma fram til 16. apríl. - "Allt umfram það er bónustími", segir Patel.

"Við náum að greina mjög dauft merki úr sendi sem er komin að 40 dögum hérna á rannsóknarstofunni en við leitina þarf því að vera beint fyrir ofan búnaðinn til að greina hljóðmerkin á fertugasta degi".

Það var P-3 Orion-vél ástralska flughersins sem náði seinast að greina hljóðmerki í gær með hljóðbylgju-baujum sem höfðu verið fleygt í sjóinn en þar seinast var það skipið Ocean Shield sem greindi merki sl. sunnudag.

Hinsvegar segir í frétt The Wall Street Journal að sérfræðingar, sem hafa farið yfir upplýsingar úr hljóðmerkjum sem baujurnar náðu að nema í gær, tilheyri ekki svarta kassa vélarinnar og hafi verið um eitthvað annað að ræða.

Áfram verður lögð áhersla á að greina ný hljóðmerki í sjónum fram að þeim degi sem talið er öruggt að rafhlöðurnar ætti alveg að vera orðnar tómar.

Tony Abbott, forsetisráðherra Ástralíu, segist vera sannfærður um að leitarflokkum eigi eftir að takast að finna nákvæma staðsetningu þar sem flak vélarinnar er á hafsbotni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga