flugfréttir

Samband rofnaði við 777 frá Jet Airways í heilan hálftíma

- Atvikið átti sér stað 5 dögum eftir að malasíska farþegaþotan hvarf

11. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 11:22

Boeing 777-300ER vél Jet Airways

Samband rofnaði við indverska farþegaþotu er hún flaug yfir Þýskalandi þann 13. mars síðastliðinn, aðeins þremur dögum eftir að malasíska farþegaþotan hvarf af radar þann 8 .mars.

Þetta hefur komið fram í fréttamiðlum síðasta sólarhring en á vefnum India Times kemur fram að flugumferðarstjórar náðu engu sambandi við flugmenn vélarinnar í heilan hálftíma en vélin hvarf þó ekki af radar og var sýnileg allan tíman.

Um var að ræða Boeing 777-300ER frá Jet Airways og var hún á leið frá London Heathrow til Bombay sem flug 9W117 en flugmenn vélarinnar höfðu tekið af sér headsetið en gleymt að auka hljóðstyrkinn svo þeir gætu heyrt mögulega fyrirtmæli frá flugumferðarstjórn.

Þegar flugumferðarstjórar gerðu sér grein fyrir því að flugmenn vélarinnar væru ekkert að svara var ákveðið að hafa samband með því að senda skilaboð gegnum ACARS kerfið og var það þá sem flugmennirnir sáu að þeir hefðu farið á mis við fyrirmælin.

Atvikið olli ótta þar sem langur tími hafði liðið þar sem ekkert samband náðist við vélina og einnig kom atvikið í skugga malasísku farþegaþotunnar sem hafði þá verið týnd í 5 daga.

Flugmálayfirvöld í Þýskalandi létu indversk stjórnvöld vita að ekki næðist samband við indverska farþegaþotu yfir þýskri lofthelgi og var atvikið litið mjög alvarlegum augum.

Flugmenn vélarinnar voru leystir af störfum í tvær vikur á meðan atvikið varrannsakað og hefur Jet Airways tekið málið í sínar hendur og gert þýskum yfirvöldum grein fyrir atvikinu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga