flugfréttir

Ríkisstjórn Malaysíu skellur sökinni á herinn og flugmálayfirvöld

- Malasíski herinn hefði getað komið í veg fyrir að leit stóð yfir á röngum stað

11. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 21:20

Hishammuddin Hussein, samgönguráðherra og forsetisráðherra Malaysíu á blaðamannafundi

Yfirvöld í Malaysíu hafa farið fram á að fá svör við því hversvegna flugmálayfirvöld og herinn í landinu tilkynnti ekki strax í upphafi um að malasíska farþegaþotan hefði sést á radar hjá flughernum sem olli því að í heila viku stóð leit yfir á röngum stað í Suður-Kínahafi og í Taílands-flóa.

Öldungardeildarþingmaður í Malaysíu sagði í viðtali við Reuters að um sé að ræða vandamál milli ríkisstjórnarinnar og her landsins en mjög undarlegt hafi verið að engin tilkynnti að vélin hefði horfið fyrr en hálftíma eftir að vélin hvarf.

Óttast var um að vélin hefði farist yfir Taílands-flóa í upphafi en það var ekki fyrr en löngu eftir á að malasíski herinn segist hafa skoðað upplýsingar á ratsjá og séð að óþekkt flugvél hefði flogið óáreitt til vesturs yfir Malaysíu-skagann.

Flugumferðarstjórar tilkynntu malasíska hernum klukkan 2:00 að vélin hefði horfið af radar klukkan 1:22 en samkvæmt reglugerð á að tilkynna slíkt ekki síðar en 15 mínútum eftir að vélin hverfur.

Yfirmaður malasíska flughersins sagði að orrustuþotur hefðu verið tiltækar bæði á herstöð nálægt Penang og einnig á austurströnd Malaysíu-skagans en þær voru ekki ræstar út þar sem atvikið var ekki talið "alvarlegt".

Viðtöl sem hafa farið fram þar sem rætt hefur verið við yfirmenn flughersins og flugmálayfirvalda hafa leitt í ljós að bæði flugumferðarstjórar og flugherinn töldu að vélin hefði verið að snúa við til Kuala Lumpur vegna bilunar.

Malasíski herinn sagði að þeir hefðu ekki viljað gefa þessa upplýsingar frá sér fyrr en búið væri að ganga úr skugga um að þetta hefði verið malasíska farþegaþotan sem var þar á ferð. Yfirmaður hersins í Malaysíu, Rodzali Daud, segir að hann hefði farið til herstöðvarinnar í Penang þann 9. mars þar sem slóð vélarinnar var rakin á ratsjá.

Einn aðili innan hersins sagði við Reuters nefndi að ástæða þess að þessar upplýsingar bárust svona seint gæti hafa verið þar sem einhverjir innan hersins höfðu áhyggjur að þeir gætu misst vinnuna sína.

Þetta atvik hefur einnig valdið spennu milli malasísku ríkisstjórnarinnar og flugfélagsins Malaysia Airlines en Hishammuddin Hussein, samgönguráðherra landsins, sagði að flugfélagið yrði á einhverjum tímapunkti að svara fyrir þau mistök sem félagið hefur gert varðandi aðstandendur og ættingja þeirra farþega sem voru um borð í vélinni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga