flugfréttir
Aðstoðarflugmaðurinn á að hafa reynt að hringja úr farsíma sínum
- Telja að vélinni hafi verið flogið niður í 5.000 fet til að ná farsímasabandi

Forsíðan á dagblaðinu New Strait Times sem kom út í nótt á íslenskum tíma. Fréttin var þó ekki aðgengileg á Netinu fyrr en nokkrum tímum síðar
Sagt er að aðstoðarflugmaður malasísku farþegaþotunnar, Fariq Abdul Hamid, hafi reynt að hringja "örvæntingarfullt" símtal úr farsíma sínum úr flugvélinni skömmu áður en vélin hvarf af frumratsjá malasíska flughersins.
Þetta kom fram fyrst í gær í prentútgáfu dagblaðsins New Strait Times sem hefur það eftir rannsóknaraðila, sem ekki vill
koma fram undir nafni, að símtalið hafi slitnað skyndilega áður en vélin hvarf af frumratsjá malasíska flughersins, eftir að henni
var beint af áætlaðri flugleið og flogið til vesturs.
New Strait Times segir að þetta sé það nýjasta sem rannsóknaraðilar hafi komist að og segja
þeir að aðstoðarflugmaðurinn á að hafa reynt að hringja umrætt símtal
er vélin var um komin um 300 kílómetra norðvestur af eyjunni Penang yfir Malacca-sundi, skömmu áður en hún á að hafa beygt til suðurs og flogið lengst niður eftir Indlandshafi.
Fram kom nokkrum dögum eftir að malasíska farþegaþotan hvarf af radar að vélinni hafi verið flogið mjög hátt upp í 40.000 fet og svo aftur
mjög lágt og allt niður í 5.000 fet þegar vélin var komin til vesturs yfir Malacca-sundið milli Malaysíu og Súmötru.
Möguleg útskýring hversvegna vélinni var skyndilega flogið óvenju lágt
Talið er að þetta útskýri mögulega hversvegna vélinni var flogið í lágri flughæð á þessu svæði og hafi flugmenn vélarinnar
mögulega gert það í von um að Fariq Abdul gæti náð sambandi með farsímanum.
Ekki er vitað í hvern aðstoðarflugmaðurinn átti að hafa reynt að hringja en það var malasíska fjarskiptafyrirtækið Telcos sem
náði að móttaka merki þess að hringt var úr síma hans. Fréttum ber ekki saman hvort staðfest er að hann hafi hringt eða hvort
einungis var merki um að hann hafi náð að komast í símasamband.
Rannsóknaraðilar segja að farsíma aðstoðarflugmannsins hafi upphaflega aftengst við farsímakerfið skömmu áður en vélin fór í loftið
sem orsakast þar sem hann hefur slökkt á símanum fyrir brottför.
Hinsvegar kom í ljós að þegar vélin var yfir Malacca-sundi tengdist farsími aðstoðarflugmannsins Fariq Abdul aftur
fjarskiptakerfi Telcos.
Sá rannsóknarhópur sem hefur rannsakað m.a. mögulegt símtal úr farsíma aðstoðarflugmannsins tilheyrir ekki
þeim alþjóðahópi sem rannsaka hvarf vélarinnar en meðal þeirra sem eru í þeim síðarnefnda er t.a.m. rannsóknarnefnd
flugslysa í Bretlandi (AAIB), Boeing, NTSB, FAA, Rolls-Royce og FBI.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.