flugfréttir

Aðstoðarflugmaðurinn á að hafa reynt að hringja úr farsíma sínum

- Telja að vélinni hafi verið flogið niður í 5.000 fet til að ná farsímasabandi

12. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 10:01

Forsíðan á dagblaðinu New Strait Times sem kom út í nótt á íslenskum tíma. Fréttin var þó ekki aðgengileg á Netinu fyrr en nokkrum tímum síðar

Sagt er að aðstoðarflugmaður malasísku farþegaþotunnar, Fariq Abdul Hamid, hafi reynt að hringja "örvæntingarfullt" símtal úr farsíma sínum úr flugvélinni skömmu áður en vélin hvarf af frumratsjá malasíska flughersins.

Þetta kom fram fyrst í gær í prentútgáfu dagblaðsins New Strait Times sem hefur það eftir rannsóknaraðila, sem ekki vill koma fram undir nafni, að símtalið hafi slitnað skyndilega áður en vélin hvarf af frumratsjá malasíska flughersins, eftir að henni var beint af áætlaðri flugleið og flogið til vesturs.

New Strait Times segir að þetta sé það nýjasta sem rannsóknaraðilar hafi komist að og segja þeir að aðstoðarflugmaðurinn á að hafa reynt að hringja umrætt símtal er vélin var um komin um 300 kílómetra norðvestur af eyjunni Penang yfir Malacca-sundi, skömmu áður en hún á að hafa beygt til suðurs og flogið lengst niður eftir Indlandshafi.

Fram kom nokkrum dögum eftir að malasíska farþegaþotan hvarf af radar að vélinni hafi verið flogið mjög hátt upp í 40.000 fet og svo aftur mjög lágt og allt niður í 5.000 fet þegar vélin var komin til vesturs yfir Malacca-sundið milli Malaysíu og Súmötru.

Möguleg útskýring hversvegna vélinni var skyndilega flogið óvenju lágt

Talið er að þetta útskýri mögulega hversvegna vélinni var flogið í lágri flughæð á þessu svæði og hafi flugmenn vélarinnar mögulega gert það í von um að Fariq Abdul gæti náð sambandi með farsímanum.

Ekki er vitað í hvern aðstoðarflugmaðurinn átti að hafa reynt að hringja en það var malasíska fjarskiptafyrirtækið Telcos sem náði að móttaka merki þess að hringt var úr síma hans. Fréttum ber ekki saman hvort staðfest er að hann hafi hringt eða hvort einungis var merki um að hann hafi náð að komast í símasamband.

Rannsóknaraðilar segja að farsíma aðstoðarflugmannsins hafi upphaflega aftengst við farsímakerfið skömmu áður en vélin fór í loftið sem orsakast þar sem hann hefur slökkt á símanum fyrir brottför.

Hinsvegar kom í ljós að þegar vélin var yfir Malacca-sundi tengdist farsími aðstoðarflugmannsins Fariq Abdul aftur fjarskiptakerfi Telcos.

Sá rannsóknarhópur sem hefur rannsakað m.a. mögulegt símtal úr farsíma aðstoðarflugmannsins tilheyrir ekki þeim alþjóðahópi sem rannsaka hvarf vélarinnar en meðal þeirra sem eru í þeim síðarnefnda er t.a.m. rannsóknarnefnd flugslysa í Bretlandi (AAIB), Boeing, NTSB, FAA, Rolls-Royce og FBI.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga