flugfréttir
"Ellefta sætið"var ekki til sýnis á Interiors Expo í Hamborg
Almennt farrými um borð í A380 risaþotu
Airbus náði ekki að sýna nýtt ellefu sæta farrými A380 risaþotunnar á Aircraft Interiors Expo ráðstefnunni sem lauk í Hamborg sl. fimmtudag.
Airbus hefur nýlega kynnt nýja möguleika um borðí risaþotunni sem gengur út á að koma fram ellefta sætinu á
almennu farrými vélarinnar með því að hækka neðri gólfflötin.
Flugvélaframleiðandinn evrópski er byrjaður að finna að nýja farrýminu og hafði Airbus tilkynnt að farrýmið
yrði til sýnis á Interiors Expo sýningunni. Hinsvegar urðu breytingar á sem olli því að ekkert var úr því
að svipta hulunni af "ellefta sætinu".
"Það þarf allt að vera tilbúið og til reiða á svona sýningum og þegar eitthvað er ekki nákvæmlega komið á hreint
þá er ekki hægt að setja hlutina á sýningar", sagði talsmaður Airbus.
Ekki er komin nein dagsetning á því hvenær flugfélögum stendur til boða að uppfæra farrými vélarinnar
með ellefu sætum þvert yfir búkinn en með því mun A380 vélin geta tekið 40 fleiri farþega.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.