flugfréttir

Air France og KLM íhuga að hætta sérstöku fraktflugi

13. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 14:51

Mikill samdráttur hefur verið í frakflugi að undanförnu og hafa vöruflutningar dregist saman m.a. milli Bandaríkjanna og Evrópu og Asíulanda

Möguleiki er á því að Air France-KLM Cargo muni leggja niður þá starfsemi sem snýr að sérstöku fraktflugi flugfélaganna Air France og KLM Royal Dutch Airlines.

Ástæðan er gríðarlegt tap á rekstrinum í frakfluginu en bæði félögin hafa flogið fraktflugvélum sínum í yfir fimm áratugi.

Samkvæmt fréttum Bloomberg Businessweek mun Air France-KLM meta stöðuna og verður ákvörðun tekin um framhaldið í september í haust en næstum 33 milljarða króna tap varð á rekstrinum í frakflugi Air France-KLM Cargo á síðasta ári sem einnig á og sér um rekstur Martinair Cargo.

Ef fraktflug fyrirtækisins leggst niður munu flugfélögin halda áfram að fljúga með frakt um borð í farþegafluginu.

Fraktflugfélög notast mikið við gamlar, eyðslusamar, fjögurra hreyfla vélar

Fred Smith, framkvæmdarstjóri FedEx, sagði nýlega að mikil hækkun á þotueldsneyti sé að koma sér mjög illa fyrir fraktflugið en flest frakflugfélög hafa yfir um að ráða stórum þotum á borð við Boeing 747, McDonnell Douglas MD-11 og Boeing 727 sem eyða meira eldsneyti en nútíma farþegaþotur sem er ástæðan fyrir því að mörg fraktflugfélög sækjast nú að að skipta yfir í tveggja hreyfla vélar á borð við Boeing 777F, Boeing 767, Airbus A300 eða A330F.

Samkeppni í fraktflugi frá flugfélögum í Miðausturlöndum

Sá gríðarlegi uppgangur sem átt hefur sér stað í fluginu í löndunum við Persaflóann hefur orðið til þess að flugfélög á borð við Emirates, Qatar Airways, Etihad Airways og Gulf Air hafa tekið yfir markaðinn með þeim afleiðingum að fraktflugfélög í Bandaríkjunum og í Evrópu ná ekki að veita þeim samkeppni.

Flugfélögin í Miðausturlöndum hafa nóg að fjármagni til að búa yfir risastórum flota af flugvélum sem stækkar ört og taka með því verkefni frá vestrænum fraktflugfélögum sem hafa flest gamlar vélar í flota sínum sem eru orðnar mjög dýrar í rekstri.

Samdráttur í kínverskum iðnaði og framleiðslu hefur einnig áhrif

Efnahagshrunið árið 2008 hafði mikil áhrif á vöruflutningum sem hefur haft þau áhrif að verskmiðjur og framleiðendur á vörum hafa í minna mæli látið framleiða varning í löndum á borð við Kína þar sem vinnuafl var mun ódýrara og hagstæðara fyrir áratugi síðan.

Með því dregst eftirspurn eftir fluttningum saman milli vestrænu landana og Asíulanda þar sem fraktflugfélög gengdu stóru hlutverki.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga