flugfréttir

Segja að flugvélin hafi lent á vitlausum flugvelli og í rangri borg

- Farþegum ekið í rútum næstum 1.000 kílómetra yfir Sádí-Arabíu

13. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 22:14

Boeing 777 vél Pakistan International Airlines (PIA) á King Abdulaziz flugvellinum í Jeddah

Pakistönsk farþegaþota er sögð hafa lent á dögunum fyrir slysni á vitlausum flugvelli í Sádí-Arabíu og í rangri borg en í ljós kom að vélin hafði tekið hóp farþega sem, höfðu bókað flug með félaginu til annarar borgar og var talið að vélin myndi millilenda þar.

Samkvæmt fréttum Gulf News var um að ræða vél frá Pakistan International Airlines (PIA) sem var á leið frá Karachi til Riyadh en í stað þess að lenda í sádíarabísku höfuðborginni þá lenti vélin í Jeddah við Rauðahaf.

Margir farþegar voru í miklu uppnámi þegar í ljós kom að þeir voru í Jeddah og þurfti að ferja þá landleiðina með rútum til Riyadh sem er um 980 kílómetra leið en Pakistan International Airlines (PIA) gaf ekki neina útskýringu hversvegna vélin flaug ekki með farþegana til Riyadh.

Einverjir farþegar sögðu að áfangastaður flugsins væri til Jeddah en fallist var á að taka hóp farþega, sem höfðu bókað flug hjá félaginu til Riyadh, og koma þeim á leiðarenda en ekki hafi verið tekið fram að vélin myndi ekki lenda þar.

Hluti af þeim farþegum, sem voru um borð í vélinni, hafa farið fram á skaðabætu frá flugfélaginu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga