flugfréttir
Tveimur flugmönnum sagt upp fyrir að villast af leið
- Voru 20 mínútur að koma sér til baka á rétta flugleið
Boeing 737-200 vél First Air
Tveir flugmenn hafa verið reknir úr starfi frá kanadíska flugfélaginu First Air eftir að Boeing 737 vél, sem þeir flugu, flaug óvart af áætlaðri flugleið, nyrst í óbyggðum Kanada þann 31. mars.
Samtök flugmanna í Norður-Ameríku (ALPA) standa við bakið á flugmönnunum og segja að First Air hafi brugðist of harkalega við með því að reka tvo mjög reynda flugmenn
sem sáu um að fljúga farþegum til mjög afskektra héraða við norðurheimskautsbaug á Boeing 737-200 vélum félagsins.
First Air segir að flugmennirnir hafi ekki framfylgt reglugerðum félagins við siglingaleiðsögu er þeir óvart flugu
240 kílómetra af leið er vélin var á leið frá Iqualuit á Baffinseyju til bæjarins Rankin Inlet í Nunavu-héraði við Hudson-flóann og
tók það flugmennina um 20 mínútur að fljúga aftur á rétta flugleið.
"Við komumst að því að þessir flugmenn fóru ekki eftir reglugerðurm flugfélagsins til að koma í veg
fyrir slíkar leiðsöguvillur - Það voru 19 farþegar og fjögurra manna áhöfn um borð þegar eitthvað fór úrskeiðis", segir í
yfirlýsingu frá First Air sem birt var sl. fimmtudag en aldrei var nein hætta á ferðum og
lenti vélin giftusamlega á áfangastað.
Það var ekki fyrr en flugmennirnir heyrðu fyrirmæli frá flugturni til annarar flugvélar að þeir áttuðu sig á því að
þeir voru komnir af leið og leiðréttu stefnu vélarinnar.
First Air gaf ekki upp hver ástæða þess að flugmennirnir flugu af leið en þeir höfðu báðir yfir 40 ára
reynslu af flugi til samans.
Atvikið gerðist tveimur vikum eftir að samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) gaf úr skýrslu í kjölfar
flugslys á vegum First Air sem átti sér stað í Resolute Bay árið 2011, sem kostaði 12 manns lífið, en þar var talið að ófullnægjandi vinnuaðferðir
og þjálfun flugmanna hefði verið orsök þess slyss.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.