flugfréttir
Farþegi reyndi að opna neyðarútgang um borð
Vélin var á leið til Sacramento frá Chicago þegar ákveðið var að koma flugdólgnum frá borði í Omaha
Farþegaþota frá Southwest Airlines neyddist til að lenda í Omaha í Nebraska eftir að farþegi um borð reyndi að opna neyðarútgang vélarinnar í miðju flugi.
Vélin var á leið frá Chicago til Sacramento í gær þegar farþegi um borð hóf að láta ófriðlega og að sögn farþega
reyndi hann að opna neyðarútgang að aftan meðan vélin var enn á flugi.
Monique Lawler, sem var farþegi um borð, sagði í viðtali við fréttastöðina KABC-TV að farþeginn hefði
hegðað sér mjög undarlega og í eitt skiptið hafi hann komið út úr salerni vélarinnar rennandi blautur áður en hann
gekk aftast í vélina og reyndi að opna neyðarútgang.
Tveir aðrir farþegar náðu að yfirbuga manninn og nam lögregla hann á brott í handjárnum eftir lendingu í Omaha.
Vélin lenti loks í Sacramento eftir tveggja tíma seinkun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.