flugfréttir
Eftirspurn eftir Boeing Business Jet eykst í Kína
Um borð í Boeing Business Jet
Eftirspurnin eftir einkaþotum hefur aukist jafnt og þétt í Kína en Boeing hefur t.a.m. afhent fimm Boeing Business Jet vélar þar í landi sl. ár.
Þetta kom fram á asísku viðskiptaflugráðstefnunni Asian Business Aviation Conference & Exhibition sem hófst í morgun
í Shanghai en meðal fyrirtækja í einkaþotufluginu sem munu kynna vörur sínar og þjónustu á sýningunni
er Cessna, Bombardier, Dassault Falcon, Embraer Executive Jets, Pratt & Whitney, Rolls-Royce, Sikorsky Aircraft ásamt
fjölda annarra aðila.
Steve Taylor, forstjóri Boeing Business Jet, sagði að Kína haldi áfram að vera mjög öflugur markaður fyrir Boeing og
séu BBJ vélarnar mjög hentugar þar sem þær hafa lengra flugdrægi en margar aðrar einkaþotur.
Þær Boeing Business Jet vélar, sem byggða eru á Boeing 737 vélunum, eru útbúnar mjög rúmgóðu farþegarými og þykja henta
mjög vel fyrir viðskiptaflug en þess má geta að Boeing hefur einnig boðið upp á einkaþotuútgáfu af
vélum á borð við Boeing 747, 777, 767 og Dreamliner-vélinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.