flugfréttir

FAA skyldar noktun ADS-B kerfisins fyrir árið 2020

- Lokið við uppsetningu á næstu kynslóðar staðsetningarkerfis í Bandaríkjunum

15. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 19:47

Bandaríska samgönguráðuneytið og bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa skyldað allar flugvélar til að nota ADS-B kerfið frá árinu 2020

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) og samgönguráðuneyti Bandaríkjanna gáfu frá sér yfirlýsingu í dag þess efnis að koma skal ADS-B staðsetningartækjum um borð í allar flugvélar á næstu árum.

Lokið hefur verið við að taka í gagnið öflugra dreifinet á staðsetningarkerfi fyrir flugið í Bandaríkjunum sem hefur verið í uppsetningu upp á síðkastið sem styðst m.a. við gervitungl.

Þeim flugfélögum, sem heyra undir FAA, verður skylt að taka í notkun Automatic Dependent Surveillance Broadcast (ADS-B) sem verður komið fyrir í öllum farþegaþotum vestanhafs fyrir árið 2020 en uppsetningin á kerfinu er stór þáttur í næstukynslóðar staðsetningartækni í farþegaflugi sem auðveldar flugumferðarstjórum að fylgjast með flugvélum á radar frá því þær fara í loftið og þar til þær lenda með GPS búnaði sem styðst við gervihnetti í stað ratsjár á jörðu niðri.

"Þetta mun einnig skaffa flugmönnum mun áreiðanlegri upplýsingar um t.a.m. veður, upplýsingar um aðra flugumferð ásamt ýmsum upplýsingum í rauntíma", segir Michael Huerta, yfirmaður FAA.

Af þeim 230 flugumferðarstjórnstöðvum sem eru í Bandaríkjunum eru aðeins 100 sem notast við þetta kerfi í dag en vandamálið við radarstaðsetningarkerfi er að það þær ekki að þekja öll svæði bæði vestanhafs og í heiminum.

Sumar flugleiðir fara fram á að flugvélar hafi þennan búnað um borð og þá sérstaklega þær vélar sem fljúga yfir úthöf á borð við flug yfir Atlantshafið og Kyrrahafið.

"Núna eru svæði t.a.m. í Bandaríkjunum sem koma ekki fram á ratsjá og víðar eins og við höfum séð með flug MH370. ADS-B mun brúa bilið og gera flugumferðarstjórum kleift að fylgjast betur með hverri vél hvar sem hún er stödd", segir flugséfræðingurinn Greg Feith.

"Margar flugvélar hafa ADS-B kerfið um borð en málið er að við höfðum ekki nægilega sterka innviði til að starfrækja kerfið í fullri mynd en núna er það að breytast í Bandaríkjunum og það mun einnig gerast í öðrum heimshlutum".







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga