flugfréttir
Risaþotan A380 lendir í Glasgow í fyrsta sinn
A380 vél Emirates lendir á flugvellinum í Glasgow
Þúsundir áhorfenda og flugáhugamenn fylgdust með því þegar A380 risaþota lenti í fyrsta sinn á flugvellinum í Glasgow en Emirates sendi risaþotuna í tilefni þess að 10 ár eru síðan að félagið flaug sitt fyrsta flug til skosku borgarinnar.
Vélin lenti skömmu eftir hádegi sl. fimmtudag í Glasgow en síðan 10. apríl árið 2004 hafa 2,4 milljónir farþega
flogið milli Glasgow og Dubai en vandalega hefur flugið verið flogið með Boeing 777 vél.
Tveir stærstu flugvellirnir í Skotlandi, Glagsow og Edinborg, hafa keppst um að fá flugfélög frá fjarlægum löndum
til að fljúga til sín en Qatar Airways mun t.a.m. hefja flug til Glasgow þann 28. maí með Dreamliner-vél.
Hér má sjá myndband er A380 vél Emirates lenti á flugvellinum í Glasgow
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.