flugfréttir

Þráðlaust net í flugi á eftir að verða mun hraðvirkara

- Gogo kynnir byltingarkennda 2Ku netkerfið

16. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 11:35

2Ku mun bjóða upp á mun hraðvirkara þráðlaust net um borð í flugvélum

Nýjar lausnir á þráðlausu interneti um borð í farþegaflugi voru kynntar á dögunum á Aircraft Interiors Expo sýningunni í Hamborg í Þýskalandi.

Þráðlaust net í fluginu í Bandaríkjunum hefur t.a.m. hingað til verið háð tveimur þáttum sem hafa skert netsamband meðal farþega sem er dreifisvæði og bandvídd.

Bandaríska fluginternetfyrirtækið Gogo Inc. í Illinois hefur kynnt til sögunnar 2Ku wi-fi netlausnir um borð í farþegaflugi sem styðst við gervihnattarsamband þar sem tvö loftnet á flugvélum sjá um upphal og niðurtal til gervitungls.

Með því geta farþegar t.a.m. komist á netið þótt að flugvélin fljúga yfir sjó en hingað til hefur stór partur af þráðlausu neti í flugi verið háður netsambandi við móttökustöð á jörðu niðri sem getur oft á tíðum verið óstöðugt.

Með 2Ku tækninni komast farþegar t.a.m. á Netið þótt vélin sé undir 10.000 feta hæð en hingað til hefur það ekki verið hægt og einnig mun nethraðinn aukast upp í 70 megabæt á sekúndu sem er tvöfaldur hraði m.a.v. þá samkeppnisaðila sem bjóða flugfélögum upp á þráðlaust net.

Gogo mun hefjast handa við að koma 2Ku kerfinu fyrir um borð í vélar Japan Airlines árið 2015 sem verður fyrsta flugfélagið til að prófa það kerfi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga