flugfréttir

Branson: Geimflug Virgin Galactic mun hefjast í sumar

16. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 18:44

Geimflug gæti hafist í sumar ef allar áætlanir Virgin Galactic ganga eftir

Milljarðamæringurinn og ævintýramaðurinn Richard Branson hefur lýst því yfir að Virgin Galactic muni hefja geimflug síðar á þessu ári og jafnvel í sumar.

Branson segist vera 90 prósent viss um að jómfrúargeimflugið verði flogið í sumar frá geimflugvellinum Spaceport America í Nýju-Mexíkó en Branson verður meðal þeirra sem verður um borð í fyrstu geimferðinni.

Skattgreiðendur í Nýju-Mexíkó samþykktu árið 2007 að greiða til samans 25 milljarða króna sem fór í framkvæmdir á Spaceport geimflugvellinum og ætlar Virgin Galactic að verða fyrsta fyrirtækið í heimi sem mun bjóða fólki upp á að fljúga út í geiminn og upplifa m.a. þyngdarleysi en geimskutlan mun mest fara í 330.000 feta hæð frá yfirborði jarðar og má meðal annars sjá hringlögun jarðarinnar.

Geimflugmiðinn verður aðeins dýrari en flug til Alicante en sá sem ætlar sér fara með þarf að greiða 27,9 milljónir króna en ekki kemur fram hvort að farangur sé innifalinn í verðinu.

Ekki er víst að Branson geti staðið við orð sín um að flugið mini hefjast á þessi ári en í maí 2013 tilkynnti hann að geimflugið myndi hefjast um jólin sama ár en seinkun varð á því

Virgin Galactic hefur sagt að stefnan sé tekin á að fljúga tvisvar í viku út í geim eða um 700 ferðir á ári en fyrirtækið bíður nú eftir að fá grænt ljós frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA).

"Við erum tilbúin þegar þau eru tilbúin", segir Christine Anderson, rekstrarstjóri Spaceport America sem segir að gert er ráð fyrir að leyfi fáist á allra næstu dögum en einhverjar prófanir eru þó eftir.

Virgin Galactic segir að 680 manns hafi þegar greitt til samans 8,9 milljarða króna inn á flugferðirnar sínar sem tryggingu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga