flugfréttir
Ryanair mun opna nýjar bækistöðvar í Þýskalandi og Póllandi
Ryanair ætlar sér að opna þrjár nýjar bækistöðvar í ár, eina í Þýskalandi og tvær í Póllandi en Köln mun verða fimmta bækistöð írska lágfargjaldarfélagsins í Þýskalandi.
Ryanair ætlar að gera Köln að bækistöð þaðan sem félagið mun fljúga til fimm áfangastaða frá og með október í haust sem eru Dublin, London Stansted,
Madríd, Riga og Róm Ciampino en í augnablikinu flýgur félagið frá Köln til Faro og Girona.
Einnig ætlar Ryanair að setja upp bækistöðvar í Gdansk og á Modlin-flugvellinum í Varsjá þaðan sem félagið mun fljúga
til Madríd, Shannon og Wroclaw. Í dag hefur Ryanair tvær bækistöðvar í Póllandi sem eru Wroclaw og Krakow en
félagið flýgur um 11 flugvelli í Póllandi í dag.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.