flugfréttir
Shandong Airlines pantar 50 farþegaþotur frá Boeing
Shandong Airlines hefur pantað 50 farþegaþotur frá Boeing
Kínverska flugfélagið Shandong Airlines hefur lagt inn pöntun til Boeing upp á fimmtíu farþegaþotur sem skiptist niður í vélar af gerðinni Boeing 737-800 og Boeing 737 MAX.
Pöntunin er metin á 4,6 milljarða bandaríkjadala sem samsvarar 514 milljarða króna og er áætlað að vélarnar verði
afhentar frá árinu 2016 og til ársins 2020.
Shandong Airlines sagði að félagið muni halda áfram að einblína á þríhyrningsleiðarkerfi með flugi milli borganna
Shandong, Xiamen og Chongqing en félagið sér fram á mikil umsvif í farþegaflugi líkt og mörg önnur flugfélög í Kína.
Kínversk stjórnvöld eiga þó eftir að samþykkja pöntunina sem er mikill vinningur fyrir Boeing þar sem Airbus er í mikillri
samkeppni með A320neo vélina á markaðinum þegar kemur að farþegaþotum fyrir 100 til 200 farþega en einnig veitir
þetta kínverska flugvélaframleiðandanum COMAC samkeppni sem framleiðir nú C919 vélina.
COMAC hefur þegar fengið 400 pantanir í C919 en flestar þær pantanir koma frá kínverskum flugfélögum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.