flugfréttir
Air India setur síðustu Boeing 777-200LR á sölu
Air India á þrjár Boeing 777-200LR vélar eftir sem hafa nú verið settar á sölu
Air India hefur sett síðustu þrjár Boeing 777-200LR vélar sínar á sölu í von um að fá fé til að brúa 55 milljarða króna lán sem notað verður til að fjármagna kaupa á fjórum Dreamliner-vélum sem félagið á eftir að fá afhentar.
Air India náði í október í haust að selja fimm Boeing 777-200LR vélar til Etihad Airways fyrir 39 milljarða króna
en þær vélar voru afhentar til flugfélagsins indverska árið 2007 og 2008.
Ekki hefur verið gefið upp söluverð á síðustu vélunum þremur en aðili innan flugfélagsins sagði að sennilega
fengist hærra verð fyrir þessar vélar þar sem þær eru nýrri og voru afhentar til Air India árið 2009.
LR-týpan er langdrægasta útgáfan af Boeing 777 vélunum en Air India hefur ekki þurft að nota þær þar sem félagið
hefur hætt við áform sín til þeirra áfangastaða vegna eldsneytisverðs en félagið segir einnig að vélarnar séu
mjög óhagkvæmar í rekstri fyrir Air India.
Boeing 777-200LR getur flogið yfir 17.000 kílómetra, sem er lengri vegalengd en nokkur önnur farþegaþota getur flogið, en
vélin tekur 238 farþega sem er meira en 100 farþegum minna en 777-300ER vélin sem tekur 342 farþega sem er
mun hagkvæmdari kostur fyrir Air India.
Boeing 777-200LR vélarnar hafa verið leystar af hólmi með Dreamliner-vélinni en Air India hefur fengið
13 slíkar afhentar af þeim 27 sem félagið pantaði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.