flugfréttir

Greenland Express Air mun hefja áætlunarflug 2. júní

- Taka Fokker 100 á blautleigu frá Denim Air

22. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 19:12

Greenland Express mun hefja farþegaflug milli Grænlands og Danmerkur með viðkomu í Keflavík þann 2. júní

Nýja grænlenska flugfélagið Greenland Express Air mun hefja áætlunarflug milli Grænlands, Íslands og Danmerkur eftir sex vikur.

Félagið hefur skrifað undir leigusamningu um leigu á einni farþegaþotu af gerðinni Fokker 100 vegna flugrekstursins og er um að ræða nýjan kost í flugsamgöngum milli landanna þriggja en þar með lýkur einokun Air Greenland á flugleiðinni milli Grænlands og Danmerkur.

Greenland Express mun fljúga frá Álaborg og Kaupmannahafnar og verður flogið til Kangerlussuaq og Narsarsuaq á Grænalandi með millilendingu í Keflavík á leiðinni þar sem vélin hefur ekki flugþol til að fljúga alla leið í beinu flugi.

Fokker 100 vélin er tekin á "blautleigu" frá hollenska flugfélaginu Denim Air og leigist hún til þriggja ára með áhöfnum og flugmönnum en sala á farmiðum opnar þann 30. apríl og vélin verður afhent félaginu í litum Greenland Express seinnipartinn í maí.

Einokunin í fluginu milli Grænlands og Danmerkur verður rofin

Samkvæmt frétt check-in.dk segir að félagið muni bjóða mun lægri fargjöld en gengur og gerist en t.a.m. mun kosta frá 77,550 krónum að fljúga fram og til baka milli Grænlands og Danmerkur.

"Flugvélin kemur með sætum fyrir 100 farþega með mjög vel útbúnnu farþegarými og það verður borinn fram matur um borð, nægt fótarými og afbragðs þjónusta ásamt því að farþegum gefst kost á að lesa okkar eigið flugtímarit", segir Gert Brask, framkvæmdarstjóri Greenland Express.

Íslenska flugfélagið Eyjaflug (Air Arctic) keypti í haust 40 prósenta hlut í Greenland Express og á móti keypti Gert Brask þriðjungshlut í Eyjaflugi og mun því rekstur félaganna beggja því sameinast.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga