flugfréttir

Fatlaður maður sem þurfti að skríða úr vél Delta fer í mál við flugfélagið

22. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 19:30

Baraka Kanaan lamaðist fyrir nokkrum árum síðan eftir bílslys og hefur flogið reglulega með Delta til að halda fyrirlestra

Fatlaður maður, sem var farþegi um borð í vél Delta Air Lines, hefur farið í mál við flugfélagið eftir að hann neyddist til að skríða úr vélinni og niður stigana á flughlaðið eftir að engin búnaður var til staðar til að aðstoða hann við að komast frá borði.

Baraka Kanaan, fyrrum prófessor frá Hawaii, bað sérstaklega um aðstoð er hann pantaði flug frá Maui á Hawaii til Nantucket í Massachusetts þar sem hann er bundinn í hjólastól.

Upprunalega fluginu var frestað vegna veðurs og var hann bókaður með fluginu daginn eftir en einmitt þá er talið að ruglingur hafi komið upp og fyrirfórst að gera ráð fyrir aðstoð.

Flugfreyja um borð í vélinni var ráðþrota þar sem ekki var hægt að koma Kanaan úr vélinni eins og hann óskaði eftir og neyddist hann því til að skríða eftir góflinu og niður stigann úr vélinni og yfir flughlaðið fyrir framan hóp fólks sem horfði á.

Samkvæmt dómskýrslu kemur fram að áhöfnin hafi gert mjög lítið til að aðstoða hann og eina hjálpin sem hann fékk var frá flugliða sem setti pappaspjöld á gólfið er hann skreið svo hann myndi ekki skíta út fötin sín.

Delta Air Lines bauð Kanaan 25 þúsund vildarpunkta sem hann neytaði að taka við þar sem hann ætlaði sér í mál við félagið.

Leynd hvílir yfir bótaupphæðinni sem sögð er vera verulega há upphæð en Louis Erteschik, yfirmaður stofnunnar sem fer með mál hreyfihamlaðra á Hawaii-eyjum, vonast til að þetta mál verði flugfélögunum víti til varnaðar og að slík tilvik muni ekki endurtaka sig.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga