flugfréttir
Nýi Hamad-flugvöllurinn í Doha opnar 30. apríl
Tíu flugfélög munu færa sig yfir á nýja Hamad International Airport þann 30. apríl
Unnið er að því að opna nýja Hamad International flugvöllurinn (HIA) í Doha þann 30. apríl en flugvöllurinn mun hefja starfsemi sína til að byrja með að hluta til.
Flugmálayfirvöld í Qatar hafa sagt að 10 flugfélög muni byrja að fljúga um völlinn við opnunina sem
eru Biman Bangladesh, flydubai, Air Arabia, Iran Air, Air India Express, Yemenia, Pakistan International, Nepal Airlines,
Syrian Air og Pegasus Airlines.
Qatar Airways mun færa sig yfir á nýja Hamad International flugvöllinn þann 27. maí ásamt fleiri alþjóða flugfélögum sem
munu flytja sig á næstu mánuðum.
Hamad International, sem einnig gengur undir nafninu New Doha International Airport, átti upphaflega að opna árið 2009 og aftur þann 1. apríl
í fyrra en opnunarhátíðinni var aflýst á síðustu klukkutímunum þegar í ljós kom að galli var í öryggismálum vallarins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.