flugfréttir
Boeing mun slá met í fjölda afhendinga á nýjum þotum í ár
- Tekjur á framleiðslu á farþegaþotum eykst um 23 prósent
Boeing náði að afhenda 161 farþegaþotu frá áramótum til 31. mars í ár
Aukin framleiðsla á farþegaþotum hjá Boeing varð til þess að hagnaður bandaríska flugvélaframleiðandans á fyrstu þremur mánuðum ársins varð meiri en gert var ráð fyrir.
Heildartekjur Boeing, sem er stærsti framleiðandi á farþegaþotum í heimi, voru 105 milljarðar króna
frá áramótum til lok marsmánaðar sem er 12,7% minna en m.a.v. sama tímabil árið 2013.
Sá 12 prósenta minni hagnaður er þó tilkomin vegna samdráttar í framleiðslu á herflugvélum og hernaðargögnum
innan Boeing en farþegaþotudeildin skilaði inn 23% auknum tekjum á tímabilinu í ár.
Frá áramótum til 31. mars náði Boeing að afhenda 161 farþegaþotu til viðskiptavina sinna, 115 af þeim voru af gerðinni
Boeing 737, tuttugu og fjórar af gerðinni Boeing 777, átján Dreamliner-vélar og fjórar 747-8. Þetta er
24 vélum meira en á sama tíma í fyrra
er framleiðandinn afhenti 137 farþegaþotu.
Boeing gerir ráð fyrir að framleiðandinn muni ná að afhenda 715 til 725 vélar á þessu ári ef allar áætlanir ganga eftir sem
myndi þá slá metið í fyrra er Boeing afhenti 648 vélar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.