flugfréttir

Breskar orrustuþotur hrekja í burtu tvær rússneskar sprengjuvélar

- Flugu of nálægt breskri lofthelgi

23. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 20:01

Tvær breskar orrustuþotur af gerðinni Eurofighter Typhoon voru sendar út til að elta uppi og fylgja tveimur rússneskum sprengjuherflugvélum í burtu eftir að þær höfðu flogið of nálægt breskri lofthelgi í dag.

Sprengjuvélarnar, sem voru af gerðinni Tupolev Tu-95, voru komnar nálægt norðausturströnd Skotlands þegar bresku orrustuþoturnar tvær voru kallaðar út frá Leuchars-herflugvellinum nálægt Dundee en einnig var ein hollensk og ein dönsk herflugvél sem aðstoðaði við aðgerðina.

Mikil spenna og ólga í kjölfar ástandsins milli Úkraínu og Rússlands á Krímskaga hefur orðið til þess að sum lönd hafa hert varnarmál sinna landa og hefur einnig eftirlit verið hert með lofthelgi í nálægum löndum.



Alistair Bunkall, fréttaritari um varnarmál, sagði í viðtali við SkyNews að reglulega komi fyrir að flugvélar fljúga of nálægt breskri lofthelgi sem ekki hafa til þess leyfi og áttu sér stað átta sambærileg tilvik árið 2013.

Tupolev Tu-95 sprengjuvélarnar eru mjög stórar fjögurra skrúfuhreyfla vélar sem gangast einnig undir nafninu "Bears" meðal NATO en Rússlands og fyrrverandi lönd Sovíetríkjanna hafa notað þær vélar í yfir hálfa öld.

Sömu sprengjuvélar hafa flogið inn á íslenska flugstjórnarsvæðið

Ísland hefur t.a.m. þurft að hafa afskipti af Tupolev Tu-95 sprengjuvélum Rússa en árið 2007 flugu tvær slíkar vélar inn á íslenska flugumferðarsvæðið en þær vélar komust næst landinu um 43 sjómílur suður af Kötlutanga þann 20. september það árið.

Íslensk stjórnvöld settu sig í samband við Atlantshafsbandalagið og var fylgst með ferðum vélanna tveggja og voru tvær breskar orrustuþotur sendar af stað til að fylgja þeim austur eftir frá landinu að mörkum loftrýmiseftirlitssvæðisins.

Viktor Ívanovítsj Tatarintsev, sendiherra Rússlands á Íslandi, sagði í kvöldfréttum RÚV árið 2007 að Íslendingar ættu að venja sig við flug slíkra flugvéla og bæri Rússum engin skylda til að láta vita um ferðir herflugvéla á alþjóðlegu flugsvæði

Ívanovítsj sagði að sprengjuflugvélar Rússa geti flogið reglulega inn á hlutlaus flugstjórnarsvæði en þó ekki inn í lofthelgi annarra ríkja.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga