flugfréttir
Azul Linhas Aéreas pantar ellefu breiðþotur frá Airbus
- Fá sex A330 vélar afhentar árið 2015 og fimm A350-900 árið 2017
Azul Linhas Aéreas hefur pantað 11 breiðþotur frá Airbus af gerðinni A330-200 og A350-900
Þriðja stærsta flugfélagið í Brasilíu, Azul Linhas Aéreas, hefur pantað sex A330-200 vélar og fimm A350-900 vélar frá Airbus en félagið hefur lokið við að fjármagna átta vélar gegnum flugvélaleigufyrirtækið ILFC.
Stofnandi Azul Linhas Aéreas er David Neeleman, sá sami of stofnaði jetBlue Airways en félagið mun fá fyrstu A330
vélarnar afhentar árið 2015 og A350 vélarnar árið 2017 en með þeim mun flugfélagið hefja flug að nýju til Bandaríkjanna
frá Viracopos–Campinas flugvellinum í Sao Paulo.
Campinas-flugvöllurinn er stærsti tengiflugvöllurinn í Brasilíu þaðan sem flogið er til 104 áfangastaða í innanlandsflugi
en Azul Linhas Aéreas er stærsta flugfélagið sem flýgur um völlinn en auk þess fljúga Gol Airlines og TAM Airlines
um Campinas auk þess sem TAP Portugal er eina flugfélagið sem flýgur millilandaflug um völlinn frá Lissabon í Portúgal.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.