flugfréttir

Málmhlutur sem skolaði á land tilheyrir ekki flugi MH370

23. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 23:16

Sólarupprás yfir bænum Augusta við suðvesturodda Ástralíu

Samgönguöryggisnefnd Ástralíu (ATSB) segir að sá hlutur sem skolaði upp á land á vesturströnd Ástralíu tilheyri ekki flaki malasísku farþegaþotunnar.

Þetta kemur fram í frétt news.com.au en hluturinn, sem er úr málmi og er 2,5 metrar á lengd, inniheldur hnoð líkt og einingar á farþegaþotum.

Samkvæmd frétt Sydney Morning Herald kemur hinsvegar fram að enn sé verið að rannsaka hvort að hluturinn tilheyri malasísku farþegaþotunni.

Lögreglan í bænum Busselton hafði afmarkað þann stað þar sem hluturinn var staðsettur á ströndinni og hefur verið beðið eftir frekari fyrirmæla frá samgönguöryggisnefnd Ástralíu (ATSB) en lögreglan flutti hlutinn á lögreglustöð þar sem m.a. voru teknar myndir af honum.

Engin áletrun er á málmhlutnum sem rak á land nálægt bænum Augusta, í um 320 kílómetra fjarlægð frá Perth, en það var einstaklingur sem kom auga á hlutinn á ströndinni og lét sveitunga á næsta bóndabæ vita áður en lögreglu var gert viðvart.

Lögregla segir að aðilinn sem fann hlutinn hefur sennilega haldið þessu leyndu í einn eða tvo sólarhringa áður en hann lét fólk vita af því sem hann sá á ströndinni.

Ástralski fréttamiðillinn Perth News segir að sjálfboðaliðar séu að skipuleggja frekari leit meðfram ströndinni ef lögreglan í Western Australia fer fram á slíka leit.

Paul Higginson, yfirmaður björgunarsveitarinnar í Augusta, segir að margir íbúar telji líklegt að ef vélin hafi farist undan ströndum Ástralíu, þá væri mjög sennilegt að brak myndi skola á land á þessu svæði.

Mikið af hlutum af ýmsu tagi skolar upp á land á þessum slóðum þar sem Leeuwin-hafstraumurinn er mjög sterkur og liggur 1.500 kílómetra vestur út á haf frá bænum Augusta.

"Þetta er mjög afskekt svæði og aðeins nokkrir bændur sem búa þarna við sjóinn. Stundum sér maður þá á mótórhjólum í sandinum að leita af hlutum sem hafa skolað upp á land - Ef einn svona hlutur, sem gæti verið úr flugvélinni skolar upp á land, þá eru fleiri þarna úti", segir Higginson.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga